Svona verður rafmagnið til

Bráðnandi snjór og jöklar renna eins og úr krana ofan í stór lón. Vatnið úr lónunum snýr hjólum í virkjunum — og hjólin búa til rafmagnið sem kveikir ljósin heima hjá þér. Allt sem hreyfist hér er alvöru: myndin sækir nýjustu mælingar á nokkurra mínútna fresti.

Hálslón21 m³/srennur inn í lónið99%Fljótsdalsstöð · 144 m³/sÞórisvatnlækkar-4 cm í gær89%Þjórsársvæðið, 6 stöðvar · 387 m³/sBlöndulónstendur í staðsvipað og í gær74%Blöndustöð · 39 m³/s
jarðvarmi 722 MW2.174 MW í flutningiallt landið notar ~2.150 MW

Þegar lón verður alveg fullt flæðir yfir — það heitir yfirfall og þá rennur vatnið fram hjá virkjuninni eins og úr yfirfullu baðkari. Fylgstu með Þórisvatni: það gæti orðið fullt í sumar!